Persónuleg þjónusta
fyrir fólk, félög og fyrirtæki
Ég veiti alhliða lögmannsþjónustu fyrir einstaklinga, stofnanir, félög og fyrirtæki. Ég hef fjölbreytta reynslu og legg alltaf áherslu á að leysa mál viðskiptavina minna farsællega.
Ég hef aðstoðað við réttindagæslu gagnvart stjórnvöldum. Ég hef flutt fjölda mála fyrir dómstólum og sætt enn fleiri. Ég hef komið að flókinni samningagerð, bæði kjarasamningum, samningum um kaup á fyrirtækjum, fjárskiptasamningum og öllu þar á milli.
Skemmtilegast af öllu finnst mér að vinna með góðu fólki við að leysa flókin mál í sátt og samstarfi. Ég er lausnamiðaður og á gott með að eiga samskipti við fólk, líka þegar mikið er undir.
Ef þú telur að ég geti orðið þér að liði, ekki hika við að hafa samband!
Oddur Ástráðsson lögmaður